María

Nafn þetta er komið úr biblíunni og hefur verið talið merkja hin fagra.


Fallbeyging

nf : María
þf : Maríu
þgf: Maríu
ef : Maríu


Romy

Er ekki þekkt í Íslensku Mannanafna bókinni.



Isabella

Spænsk mynd af nafninu Elísabet, lagað að lýsingarorðinu "bella" sem merkir fögur.

Fallbeyging

nf : Ísabella
þf : Ísabellu
þgf: Ísabellu
ef : Ísabellu

Tigist merkir Þolinmæði



Solyana

Hebresk þýðing af nafninu María Mey

Fallbeyging

nf : Solyana
þf : Solyönu
þgf: Solyönu
ef : Solyanar





Meyjan
23. ágúst - 22. september

Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur.
Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin.
Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því.
Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin.
Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma.
Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir.
Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.



Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku.
Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott.
Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll.
Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar.
Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun.
Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel.
Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er.
Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig.
Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu.
Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar.
Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf,
veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr.



Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.






Dóttir mín

Elsku Yndislega Dóttir mín.
ÉG veit að ég á ekki alltaf auðvelt með að tjá tilinningar mínar.
En nú langar mig til að segia þér hvað ég elska þig mikið.
Mig langar til að segia þér hug minn.
Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki fengið þig inn í líf mitt.
Þú ert mér allt.
Þú ert súrefnið mitt, andadráttur minn og löngun mín til að lifa.
Hamingja mín hófst með komu þinni í þennan heim.
Í dag horfi ég á þig og er hissa á því hvað þú ert raunveruleg.
Ég er svo ótrúlega heppin að hafa fengið þig inn í líf mitt, og að fá að hafa
Þig, mér við hlið í gegnum lífið.
Ég hef reynt að læra sem mest af þér í gegnum tíðina.
ÉG reyni að meta þig að veruleikum.
Þú hefur kennt mér svo margt um lífið, sem ég annars hefði farið á mis við.
Hvar væri ég án þín?
Ég elska þig elsku dóttir mín, nú og að eilífu.

Þín mamma.



ELSKU MAMMA OG PABBI...

Ég er með svo litlar hendur,ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.
Fæturnir á mér eru svo stuttir,farðu hægar svo ég geti fylgt þér.
Ekki slá á hendurnar mínar þegar ég snerti eitthvað fallegt,ég skil það ekki.
Horfðu á mig þegar ég er að tala við þig, þá veit ég að þú ert að hlusta.
Ég hef viðkvæmar tilfinningar,ekki vera alltaf að skamma mig.
Leyfðu mér að gera eitthvað vitlaust án þess að þér finnist ég vitlaus.
Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um sé fullkomið.
Elskaðu mig bara fyrir að reyna.



ÞITT FYRSTA BROS

Þú kveiktir von um veröld betri
mín von hún óx með þér.
Og myrkrið svarta vék úr huga mér um stund,
loks fann ég frið með sjálfum mér.

Það er svo undarlegt að elska
- að finna aftur til.
Að merkja nýjar kenndir kvikna,
að kunna á því skil
hvernig lífið vex og dafnar í myrkrinu.
Að hugsa um þig hvern dag, hverja nótt
er skylda sem ber umbunina í sjálfri sér.

Þitt fyrsta bros, þín fyrstu skref, þín fyrstu orð.
Þín fyrstu tár, þín fyrsta sorg, þín fyrsta hrösun.
Þín fyrsta ást, þinn fyrsti koss, þín fyrstu ljóð.
Mér finnst þú munir fæða allan heiminn alveg upp á nýtt.







Fanney Rut

Hilmar Geir ,

Naomi´s design ,

Guðrún Bettý ,

Ester og Lillja ,

Ísak Aron ,




Prinsessu kveðjur
María Romy, Isabella Tigist og Solyana